Fólk í norðurslóðamálum
Á Íslandi eru fjölmargar stofnanir og fyrirtæki sem starfa í þágu norðurslóða. En hvað gera þessar stofnanir í raun og hverjir starfa þar? Þetta eru spurningar sem margir velta fyrir sér þegar talað er um þessi mál, meðal annars í fjölmiðlum. Því stendur Norðurslóðanet fyrir kynningum á einstaklingum innan þessara stofnana og starfsemi þeirra. Þar á meðal eru PAME, IASC, CAFF, Norðurslóðanet og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, sem allar eru staðsettar í Borgum á svæði Háskólans á Akureyri. Einnig er fjallað um þátttöku Háskólans á Akureyri og Akureyrarbæjar í norðurslóðamálum og fleira. Um er að ræða áhugaverða einstaklinga í fjölbreyttum störfum, fólk sem er menntað í norðurslóðafræðum en einnig einstaklinga sem að leiddust óvænt inn á þessa braut. Allir þessir einstaklingar eiga það sameiginlegt að brenna fyrir málefnum norðurslóða.
Þetta kynningarverkefni er styrkt af áherslu verkefnasjóði SSNE (Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra).
Viðmælendur:
- Þorsteinn Gunnarsson
- Ásthildur Sturludóttir
- Níels Einarsson
- Tom Barry
- Soffía Guðmundsdóttir
- Embla Eir Oddsdóttir
- Gerlis Fugman
- Rachael Lorna Johnstone
- Arngrímur B. Jóhannsson
- Arnar Friðriksson
- Pedro Rodrigues
- Hreiðar Þór Valtýsson
- Starri Heiðmarsson
- Egill Þór Níelsson